Selfoss Karfa og Chris Caird skrifuðu í gær undir samning um áframhaldandi samstarf. Fyrri tveggja ára samningur er á lokametrunum en nýi samningurinn er til næstu fimm ára.

Í samningnum felst að Caird verður áfram aðalþjálfari meistaraflokks karla og unglingaflokks, og einnig yfirþjálfari körfuboltaakademíu félagsins við Fjölbrautaskóla Suðurlands.

Samningnum fylgir ítarleg markmiðasetning, þar sem grunnstefin eru þróun ungra leikmanna, uppbygging til framtíðar innan félagsins og áhersla á að aðstoða metnaðarfullt ungt körfuboltafólk við að taka næstu skref fram og upp á við, m.a. að koma sér á framfæri við háskóla í Bandaríkjunum og lið erlendis.