Aðalfundur Körfuknattleiksfélags Selfoss verður haldinn mánudaginn 30. mars 2020 kl. 20:00 í Selinu, Engjavegi 48, á Selfossi. Allir velunnarar félagsins velkomnir. Dagskrá aðalfundar skv. lögum félagsins er eftirfarandi:

 

  1. gr.

Dagskrá aðalfundar.

  1. Formaður setur fund.
  2. Kosinn fundarstjóri.
  3. Kosinn fundarritari.
  4. Fundargerð síðasta aðalfundar lögð fram til samþykktar.
  5. Formaður leggur fram skýrslu félagsins.
  6. Gjaldkeri leggur fram og útskýrir skoðaðareikninga, sem síðan eru bornir undir atkvæði.
  7. Lagabreytingar.
  8. Kosning stjórnar
  9. Kosning formanns
  10. Kosning sex annarra stjórnarmanna.
  11. Kosning tveggja skoðunarmanna.
  12. Gjaldkeri leggur fram drög að fjárhagsáætlun fyrir næsta rekstrarár.
  13. Önnur mál.

Stjórnin