Aðalfundur Körfuknattleiksfélags Selfoss verður haldinn í Selinu við Engjaveg á Selfossi miðvikudaginn 29. mars 2023 kl. 20:00

Dagskrá aðalfundar er eftirfarandi í samræmi við 8. grein laga félagsins:

  1. Formaður setur fund.
  2. Kosinn fundarstjóri.
  3. Kosinn fundarritari.
  4. Fundargerð síðasta aðalfundar lögð fram til samþykktar.
  5. Formaður leggur fram skýrslu félagsins.
  6. Gjaldkeri leggur fram og útskýrir skoðaða reikninga, sem síðan eru bornir undir atkvæði.
  7. Lagabreytingar.
  8. Kosning stjórnar
    1. Kosning formanns
    2. Kosning sex annarra stjórnarmanna.
    3. Kosning tveggja skoðunarmanna.
  9. Gjaldkeri leggur fram drög að fjárhagsáætlun fyrir næsta rekstrarár.
  10. Önnur mál.

-Stjórnin