Meistaraflokkur Selfoss gerði sér góða leið á Akranes í kvöld þegar liðið mætti ÍA í 3. umferð 1. deildarinnar. Sigur Selfoss var aldrei í hættu þar sem liðið bætti við forskotið í hverjum leikhluta og uppskar 66-87 sigur fyrir vikið.

Selfyssingar byrjuðu leikinn að krafti og skoruðu fyrstu 7 stig leiksins, en heimamenn voru fljótir að vakna og voru búnir að koma sér inní leikinn áður en 1. leikhluti kláraðist, staðan 16-19. Í 2. leikhluta byrjuðu Selfyssingar að setja tóninn fyrir restina af leiknum. Jafnt og þétt byrjuðu þeir að auka muninn á milli liðanna og munaði 11 stigum á liðunum þegar liðin fóru inn í hálfleik, 27-38. Sama var uppá teninginn í 3. og 4. leikhluta. Selfyssingar voru allan tíman með yfirhöndina í leiknum og var sigurinn á ÍA aldrei í hættu. Lokatölur 66-87.

Óli Gunnar Gestsson var atkvæðamestur í liði Selfoss í kvöld og skilaði 23 stigum og reif niður 14 fráköst. Vito Smojer var með 19 stig, Gasper Rojko 14 stig, Trevon Ewans 12 stig og 6 stoðsendingar, Styrmir Jónasson 6 stig, Björn Ásgeir Ásgeirsson 6 stig, Ísar Freyr Jónsson 5 stig og Arnar Geir Líndal 2 stig. Allir leikmenn liðsins komu við sögu í leiknum í kvöld.

Með sigrinum er Selfoss komið í 4. sæti deildarinnar, með tvo sigra og eitt tap.

Næsti leikur liðsins er heimaleikur á móti Sindra, föstudaginn 15. október kl. 19:15 í Vallaskóla.